
Á morgun, 1. mars, lýkur þriðja lestrarátaki Ævars vísindamanns. Grunnskólar landsins hafa nú tæpa viku til að koma lestrarmiðum til skila, en dregið verður í átakinu þann 8. mars næstkomandi. Fimm börn sem dregin verða úr lestrarátakspottinum verða svo gerð að persónum í nýrri bók eftir Ævar Þór Benediktsson, Gestir utan úr geimnum, sem kemur út í maí.
Sú nýlunda verður höfð á þetta árið að Ævar mun ekki sjálfur draga nöfnin fimm úr pottinum, heldur mun forseti Íslands, herra Guðni Th. Jóhannesson, sjá um það. Þetta er í þriðja skiptið sem átakið er haldið, en fyrri tvö átökin gengu einstaklega vel og voru yfir 114 þúsund bækur samtals lesnar í þeim.
Allar nánari upplýsingar um átakið má finna á www.visindamadur.is, en fjölmiðlum verður svo boðið sérstaklega á viðburðinn þegar nær dregur.





