Mamma segir eftir dönsku skáldkonuna Stine Pilgaard kom út hjá Forlaginu snemma sumars og hlaut í vikunni flottan þrjggja og hálfrar stjörnu dóm í Morgunblaðinu.
Gagnrýnandi Morgunblaðsins, Silja Björk Huldudóttir, hafði þetta að segja um höfundinn:
„Ástarsorg og mislukkuð tjáskipti eru meginþemað í fyrstu skáldsögu dönsku skáldkonunnar Stine Pilgaard sem nefnist Mamma segir. Fyrir skáldsögu sína hlaut Pilgaard árið 2012 verðlaun úr Menningarsjóði Bodil og Jörgen Munch-Christiansen sem veitt eru efnilegasta nýliðanum á bókamarkaði ár hvert. Bókin hefur að mestu hlotið afar lofsamlega dóma og góðar viðtökur í heimalandinu, ekki síst fyrir leik höfundar að tungumálinu sem Steinunn Stefánsdóttir þýðir af stakri prýði.“
Silja kom líka að söguþræði bókarinnar: „Mamma segir gerist á rúmlega tíu mánaða tímabili og fjallar um unga konu sem er sagt upp af kærustu sinni eftir þriggja og hálfs árs samband. Konan unga, sem er nafnlaus í bókinni, flytur heim á prestssetur pabba síns og reyndir þar að takast á við ástarsorgina með því að háma í sig sætindi, fara á fyllerí og leita ásjár hjá þeim sem standa henni næst á meðan hún lætur lokaverkefni sitt við háskólann sitja á hakanum. Í stuttum köflum bókarinnar birtast okkur samtöl ungu konunnar við pabba sinn, mömmu sína sem er hraðlyginn fasteignasali, lækninn sem eniblínur um of á efnafræðilega sambönd, kærustuna fyrrverandi og vonkonuna Mulle sem er iðulega með aldraða ömmu sína bundna í hjólastól í eftirdragi.“
Að lokum var niðurstaða Silju afar jákvæð: „Óhætt er að segja að persónugalleríið sé fjölskrúðugt, skemmtilegt og á köflum jafnvel gróteskt … afar hugvitsamlega samansett og eftir því skemmtileg aflestrar. Húmorinn leikur stórt hlutverk í bókinni og virkar oft vel…“
Mamma segir er tilvalin í fríið!





