Útgáfuhóf og bókakynning á degi íslenskrar tungu

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Við fögnum útkomu bókarinnar Sigrún og Friðgeir. Ferðasaga í Þjóðmenningarhúsinu á morgun laugardag. Þar mun Sigrún Pálsdóttir sagnfræðingur segja stuttlega frá þessari mögnuðu og viðburðarríku sögu.  Verið velkomin í Bókasalinn kl. 17 á þessum degi íslenskrar tungu.

Sigrún og Friðgeir. Ferðasaga greinir frá lífi hjónanna Sigrúnar Briem og Friðgeirs Ólasonar sem árið 1940 lögðu af stað áleiðis til Bandaríkjanna í sérnám í læknisfræðum. Eftir fjögurra ára viðburðaríka vist snúa þau aftur heim; hann með doktorspróf frá Harvard, hún rétt búin að ljúka kandídatsári sínu – og sigla ásamt þremur börnum sínum með Goðafossi haustið 1944. Sigrún og Friðgeir – Ferðasaga er saga úr síðari heimsstyrjöldinni sem  snertir marga ólíka þætti í sögu Íslands á 20. öld, en inn í hana sogast líka nánast óteljandi atburðir úr sögu bandarísks samfélags.

Bók Sigrúnar byggir á bréfum og dagbókum þeirra hjóna en höfundur notar einnig fjölda ljósmynda til að draga upp senur og dýrmæt augnablik í lífi fjölskyldunnar og er frásögnin af atburðarrásinni um borð í Goðafossi eftir að tundurkeyti frá þýskum kafbát skellur á honum er hér sögð frá nýju sjónarhorni með Sigúnu og Friðgeir, og börn þeirra þrjú í brennidepli.

Fyrri bók Sigrúnar, Þóra biskups og raunir íslenskrar embættismannastéttar, sem út kom árið 2010 vakti mikla athygli og hlaut tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.


Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd