Úlfhildur fílar Úlfshjarta

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Stefán Máni

Betri meðmæli getur Úlfshjarta Stefáns Mána vart fengið en jákvæða umfjöllun eftir besta vin varúlfabókmenntanna hérlendis, Úlfhildi Dagsdóttur. Úlfhildur skrifar um bókina á bokmenntir.is undir yfirskriftinni Dýrið gengur laust en rétt er að vara strax við dómnum, hann segir ansi mikið um söguþráð bókarinnar svo þeir sem vilja ekki vita meira ættu einfaldlega að líta á dóm Úlfhildar sem eindregna hvatningu til að næla sér í bókina 0g lesa hana í hvelli.

Úlfhildur bendir á að þótt úlfurinn hafi verið áberandi í íslenskri menningu til forna, og fjölmörg úlfa-nöfn vitni um það hversu nærtækur hann sé þjóðarsálinni, hafi hanni ekki gert sig sérlega breiðan í nútímabókmenntum. Þessu bæti Stefán Máni úr með sannfærandi hætti og því fagnar gagnrýnandinn: „Einkenni sagna Stefáns Mána er hráslagalegt kraftmikið raunsæi sem er stöðugt skotið undirtónum dulúðar. Þannig virðast verkin vera einfaldur harðkjarna töffaraskapur, eins og birtist til dæmis í kvikmyndinni Svartur á leik (2012). En það eru alltaf einhver draugalýsulog sem trufla og gefa skáldsögunum fjölkunnug blæbrigði sem gera þau áhugaverð, skapa þeim víðara svið og auka á kraftinn. Þetta er allt til staðar í Úlfshjarta, og þrátt fyrir að bókin sé ætluð yngri lesendum, ‚for-unglingum‘, unglingum og ‚ungum fullorðnum‘, slær Stefán Máni ekki af kröfunum. Vissulega er sagan um margt hnitmiðaðri og straumlínulagaðri en fyrri skáldsögur hans (sem iðulega eru all mikilúðlegar), en það þýðir ekki að leitað sé ódýrra lausna. Verkið er einfaldlega vel heppnað og varúlfarnir afar velkomnir.“

Að lokum hrósar Úlfhildur kápuhönnun Eyþórs Páls Eyþórssonar „sem er sömuleiðis afar vel heppnuð og hæfir verkinu fullkomlega.“

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd