Tímarit Máls og menningar komið út!

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
TMM1 2015

Tímarit Máls og menningar er komið út, fyrsta hefti ársins, og kennir þar margra grasa að vanda.

Tvö áður óbirt ljóð sem Einar Bragi skáld skildi eftir sig fullfrágengin eru hér birt. Kristín Ómarsdóttir tekur ýtarlegt og skemmtilegt viðtal við Álfrúnu Gunnlaugsdóttur rithöfund en hinn serbneski þýðandi bókarinnar Mánasteins eftir Sjón, Ana Stanicevic, skrifar um tengsl bókarinnar við expressjónismann og þá einkum myndir norska málarans Edvards Munchs.

Gísli Sigurðsson fjallar um Landnámu og heimildagildi hennar sem dregið hefur verið mjög í efa á umliðnum árum en Þorsteinn Þorsteinsson veltir vöngum yfir bókmenntkenningum og ljóðalestri í framhaldi af bók sinni um fjögur ljóðskáld sem kom út nú fyrir jólin.

Loks má nefna rækilega grein eftir Kjartan Má Ómarsson, „Húsin eru eins og opin bók“, sem fjallar um Guðjón Samúelsson, húsameistara ríkisins, verk hans og samband við Jónas Jónsson frá Hriflu. Og er þá fátt eitt talið af fjölbreyttu efni heftisins þar sem meðal annars er að finna nýjar sögur og ljóð, greinar, ræður bókmenntaverðlaunahafa og dómar.

Ritstjóri er Guðmundur Andri Thorsson.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd