Tilnefningar til Fjöruverðlaunanna

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Fjöruverðlaunin 2011

Tilkynnt var um tilnefningarnar til Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverðlauna kvenna, nú um helgina. Tilnefndar í flokki fagurbókmennta eru ljóðabækurnar Blóðhófnir og Síðdegi eftir Gerði Kristnýju og Vilborgu Dagbjartsdóttur og skáldsagan Ljósa eftir Kristínu Steinsdóttur. Í flokki fræðibóka eru bækurnar Tónlist í leikskóla eftir Sigríði Pálmadóttur og ævisagan Þóra biskups og raunir  íslenskrar embættismannastéttar eftir Sigrúnu Pálsdóttur tilnefndar auk bókarinnar Konan sem fékk spjót í höfuðið eftir Kristínu Loftsdóttur sem út kom hjá Háskólaútgáfunni.

Í flokki barna- og unglingabóka eru tilnefndar bækurnar Skrímsli á toppnum eftir Áslaugu Jónsdóttur, Rakel Helmsdal og Kalle Güettler, Íslensk barnaorðabók sem Ingrid Markan, Laufey Leifsdóttir og Anna Cynthia Leplar önnuðust útgáfuna á og bókin Þankagangur sem Vala Þórsdóttir og Agniezka Nowak skrifuðu og gáfu út.

Verðlaunin verða afhent í mars.


Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd