Tilnefningar til Menningarverðlauna DV

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Tilnefndir höfundar til menningarverðlauna DV

Menningarverðlaun DV fyrir árið 2011 verða afhent miðvikudaginn 7.mars í Iðnó klukkan 17.00. Í flokki bókmennta eru fimm af sex tilnefndum bókum frá Forlaginu.

Guðmundur Andri Thorsson er tilnefndur fyrir sagnasveig sinn Valeyrarvalsinn, sem er safn smásagna sem allar gerast í sama sjávarþorpinu og tengjast innbyrðis. Vigdís Grímsdóttir er tilnefnd fyrir Trúir þú á töfra? sem fjallar um Nínu Björk litlu og lífsbaráttu hennar í þorpinu skrýtna. Þórarinn Leifsson er tilnefndur fyrir æviskáldsöguna Götumálarinn sem er í bland ferða- og þroskasaga Íslendings sem flækist um og vinnur fyrir sér með götulistaverkum. Guðrún Eva Mínervudóttir er tilnefnd fyrir Allt með kossi vekur sem vann nýlega til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Ragna Sigurðardóttir er tilnefnd fyrir íslensku samtímasöguna Bónusstelpan.

Í flokki fræða er  Sölvi Sveinsson tilnefndur fyrir bók sína Táknin í málinu sem gert er grein fyrir merkingu, sögu og birtingarmyndum mörg hundruð tákna.

Forlagið óskar höfundunum innilega til hamingju og minnir lesendur á að hægt er að kjósa þá tilnefningu sem þeim líst best á vef DV. Sú tilnefning sem hlýtur flest atkvæði fær sérstök verðlaun sem kallast Val lesenda á Menningarverðlaunum DV.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd