Bók Þórarins Leifssonar, Bókasafn ömmu Huldar, var í dag tilnefnd af hálfu Íslands til Norrænu barnabókaverðlaunanna. Félag fagfólks á skólasöfnum stendur að tilnefningunni. Verðlaun þessi eru heiðursverðlaun samtaka norrænna skólasafna, Nordisk Skolebibliotekarforening, og forstöðumanna þeirra en þau hafa verið afhent síðan 1985.
Til hamingju Tóti!
- Höfundur: Ritstjórn Forlagsins





