Gleði, gleði! Tilnefnt var til Íslensku bókmenntaverðlaunanna við hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum seinni partinn í gær. Forlagshöfundar voru þar áberandi og komu fyrir í öllum flokkum. Við sömu athöfn voru kynntar tilnefningar til Íslensku þýðingarverðlaunanna en þar koma bækur Forlagsins einnig við sögu.
Í flokki fagurbókmennta v0ru tilnefndar:
- Öræfi eftir Ófeig Sigurðsson
- Kok eftir Kristínu Eiríksdóttur
- Þrír sneru aftur eftir Guðberg Bergsson
Í flokki barna- og unglingabóka:
- Fuglaþrugl og naflakrafl eftir Þórarin Eldjárn og Sigrúnu Eldjárn
- Hafnfirðingabrandarinn eftir Bryndís Björgvinsdóttir
- Síðasti galdrameistarinn eftir Ármann Jakobsson
- Maðurinn sem hataði börn – Þórarin Leifsson
Í flokki fræðibók og rita almenns efnis:
- Lífriki Íslands – Snorra Baldursson
- Sveitin í sálinni – Eggert Þór Bernharðsson
Tilnefningar til íslensku þýðingaverðlaunanna hlutu:
- Silja Aðalsteinsdóttir fyrir þýðingu sína á Lífið að leysa eftir Alice Munro
- Jón St. Kristjánsson fyrir þýðingu sína á Náðarstund eftir Hönnuh Kent
Hér má sjá lista yfir allar tilnefningarnar
Íslensku bókmenntaverðlaunin 2014 verða afhent um mánaðamótin janúar febrúar á komandi ári af forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, á Bessastöðum.
Við óskum höfundunum okkar innilega til hamingju með þennan frábæra árangur!





