Til hamingju, Guðrún Eva!

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Guðrún Eva - Íslensku bókmenntaverðlaunin

Í gær voru Íslensku bókmenntaverðlaunin afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Guðrún Eva Mínervudóttir hlaut verðlaunin í flokki fagurbókmennta fyrir skáldsöguna Allt með kossi vekur sem kom út fyrir jólin.

Þriggja manna lokadómnefnd, skipuð þeim Þorgerði Jennýjardóttur Einarsdóttir, Árna Matthíassyni og Þorsteini Gunnarssyni, valdi verkin úr hópi tíu bóka sem tilnefndar voru til verðlaunanna í desember síðastliðnum, fimm í flokki fagurbókmennta og fimm í flokki fræðirita og bóka almenns efnis.

Allt með kossi vekur er sjötta skáldsaga Guðrúnar Evu. Þetta er kraftmikil og hugmyndarík saga sem sver sig í ætt við fyrri bækur skáldsins, þar sem frásögnin dansar á mörkum raunsæis og fantasíu. Bókin hefur fengið gríðarlega góða dóma þar sem meðal annars talað er um bókina sem „seiðmagnað skáldverk” og sagt að Guðrún Eva sé „einn okkar frjóasti og frumlegasti höfundur [sem hafi] einstakt lag á því að sýna samskipti fólks í nýju og óvæntu ljósi.“

Þessa dagana er bókin á 50% afslætti á Netmarkaði Forlagsins þannig að þeir sem ekki eiga verðlaunabókina geta nælt sér í hana á verðlaunaverði.



Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd