Til hamingju Arnaldur

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Tilkynnt var í gær að bókin Skuggasund, ný skáldsaga eftir Arnald Indriðason, hlyti hin kunnu og virtu spænsku RBA Novela Negra-verðlaun, en það eru alþjóðleg glæpasagnaverðlaun sem veitt eru árlega fyrir óútgefna bók. Valið er úr tugum handrita frá ýmsum löndum sem send eru inn undir dulnefni. Forseti Katalóníu, Artur Mas, afhendir verðlaunin með viðhöfn í kvöld að viðstöddum borgarstjóra Barcelona, Xavier Trias, og fjölda annarra gesta. Fyrri handhafar verðlaunanna eru m.a. Michael Connelly, Patricia Cornwell, Philip Kerr, Andrea Camillieri, Harlan Coben o.fl.

Skuggasund er sautjánda bók Arnaldar Indriðasonar og er væntanleg samtímis á spænsku og íslensku síðar í haust. Spænska þýðingu gerir Fabio Teixidó Benedí.

Arnaldur  hefur árum saman notið gríðarlegrar hylli lesenda og gagnrýnenda, jafnt hér heima sem erlendis. Bækur hans hafa verið þýddar á tugi tungumála, selst í milljónum eintaka og aflað höfundinum verðlauna og virðingar víða um lönd. Meðal verðlauna sem Arnaldi hafa áður hlotnast má nefna norrænu Glerlyklana, sænsku Martin Beck-verðlaunin, breska Gullrýtinginn og frönsku verðlaunin Grand Prix des Lectrices de Elle og Le Prix du Coeur Noir.

Forlagið óskar Arnaldi hjartanlega  til hamingju með þessa nýju viðurkenningu.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd