Thors Vilhjálmssonar minnst

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Thor Vilhjalmsson

Fjölmargir erlendir fjölmiðlar á Norðurlöndum, Frakklandi, Spáni og Ítalíu hafa að undanförnu minnst Thors Vilhjálmssonar rithöfundar með eftirsjá og virðingu, en Thor féll frá þann 2.mars  s.l.. Flestir rifja þeir upp störf Thors í þágu menningar á Íslandi, erlendar bókmenntaþýðingar hans og áhrif á strauma og stefnur í íslenskum bókmenntum.

Franski þýðandinn Régis Boyer líkir Thor við stafnbúa í Íslendingasögunum og telur hann hafa gert meira fyrir útbreiðslu íslenskrar menningar, bókmennta og lista, en nokkur annar núlifandi höfundur. Hann, umfram alla, hafi orðið þess valdandi að rödd Ísland heyrðist í samhljómi evrópsks nútíma.

Minningargrein í spænska blaðinu El País kallar Thor Vilhjálmsson „risa í íslenskum bókmenntum” og segir að með honum hafi horfið á braut einn mesti rithöfundur Íslendinga allra tíma og mikilmenni evrópskra bókmennta.

Corriere della sera og fjölmargir ítalskir fjölmiðlar kveðja skáldið og minnast um leið þýðinga hans á ítölskum bókmenntum og vináttu hans við ýmsa fyrirmenn í ítölsku menningarlífi, eins og Pasolini og Fellini, en sá fyrrnefndi bauð Thor hlutverk Krists í myndinni „Guðspjallið samkvæmt Mattheusi“.  Í Mondo Editoriale er Thor nefndur „mestur íslenskra samtímahöfunda“, en í greininni segir m.a.: „Thor  Vilhjálmsson er einn af fyrstu íslensku rithöfundunum á tuttugustu öld til að fjarlægjast hvers kyns raunsæi í lýsingum á mannlegum aðstæðum og málefnum og horfa þess í stað til frjálslegs frásagnarmáta og hugmyndaauðgi evrópsku skáldsögunnar (Joyce) og þeirrar amerísku (Faulkner). Þannig losnaði hann úr fjötrum átthaganna og forðaðist að líkja eftir verkum Halldórs Laxness, föður hinnar íslensku skáldsögu samtímans“.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd