Þín eigin-bækurnar á rússnesku!

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Ævar

Barnabókaflokkur Ævars Þórs Benediktssonar, sem best eru þekktar undir nafninu Þín eigin-bækurnar, hafa notið gríðarlegra vinsælda hjá íslenskum fjölskyldum undanfarin ár og skipað sér í eitt af efstu sætum metsölulista landsins undanfarin jól. Nú berst hróður bókanna út fyrir landssteinana.

Í október síðastliðnum var Ævari boðið til Rússlands á eina stærstu bókamessuna þar í landi, Kryakk-hátíðina í Síberíu. Þar kynnti hann bækur sínar, gerði vísindatilraunir með krökkum, las upp úr verkum sínum og hitti rússneska útgefendur.

Í kjölfar heimsóknarinnar hefur Ævar Þór skrifað undir útgáfusamning við eitt metnaðarfyllsta forlagið í Rússlandi, Meshcheryakov Publishing House, um útgáfu allra fjögurra bókanna úr Þín eigin-seríunni: Þín eigin þjóðsaga, Þín eigin goðsaga, Þín eigin hrollvekja og Þitt eigið ævintýri. Meshcheryakov útgáfan var stofnuð af fyrrum bankamanni, Vadim Meshcheryakov, sem læknaði þunglyndi sitt með því að yfirgefa bankageirann og demba sér í bókaútgáfu. Á þeim tólf árum sem fyrirtækið hefur starfað hefur það sérhæft sig í metnaðarfullri útgáfu á hágæða barnabókum og þykir forlagið eitt það flottasta og virtasta í sínum geira þar í landi.

Nýjasta bókin í flokknum, Þitt eigið ævintýri, er um þessar mundir ein mest selda bók landsins og Ævar á kafi í jólabókaflóðinu.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd