Stórskemmtileg, ævintýraleg og spennandi bók

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Stefán Máni

Anna Lilja Þórisdóttir hrósar nýrri bók eftir Stefán Mána í hástert í Morgunblaðinu í dag og gefur henni fjórar stjörnur. Í umfjölluninni um Úlfshjarta segir meðal annars: „Stefán Máni, sem sumir vilja kalla Tarantino íslenskra bókmennta, er þekktur fyrir flest annað en að skrifa barn- eða unglingavænar bækur. Ef einhverjar bækur ætti að banna börnum þá væru það hugsanlega sumar bóka hans, en hér vendir hann kvæði sínu í kross og útkoman er þessi líka stórskemmtilega, ævintýralega og spennandi unglingabók.“

Bókin segir frá tveimur reykvískum unglingum, Alexander sem er hættur í menntaskóla og vinnur á kókbílnum, og Védísi sem er nýbyrjuð í MR. Að mati Önnu Lilju eru þau dregin þéttum dráttum, „krakkarnir flottir og trúverðugir, atburðarásin er hröð og töff og bókin öll hin skemmtilegasta. … Samband þeirra hefst líklega eins og mörg þúsund sambönd fólks á þessum aldri; hann býður henni í bíó. En það sem á eftir fylgir er ekkert mjög hefðbundið; íslenskur raunveruleiki kallast á við ævafornar þjóðsögur og ævintýri og aldagamlar goðsagnir spígspora um malbikið á götum Reykjavíkur eins og ekkert sé sjálfsagðara í slagtogi við illræmda glæpamenn.“ Í sama streng tók Kolbrún  Bergþórsdóttir í umfjöllun um bókina í Kiljunni í gærkvöld: „Stefán hefur í flestum sínum bókum verið að skrifa um dýrið í manninum, villidýrið í manninum, illskuna og annað slíkt. Það er stefið í þessari bók. Það sem mér finnst hann gera óskaplega vel er að lýsa tveim unglingum, strák og stelpu, sem hafa í sér grimmd og sýna mikla skapgerðarbresti … Mér finnst þetta unga fólk mjög vel gert hjá honum.“

Anna Lilja endar fjögurra stjörnu dóm sinn á þessum orðum: „Bókarlok gefa von um framhald og vonandi er það rétt skilið.“

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd