Stílgáfa höfundar óumdeilanleg

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Ófeigur Sigurðsson

Ófeigur Sigurðsson hlaut mikið lof gagnrýnenda og Bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins fyrir Skáldsögu um Jón (2010) þar sem hann varpaði nýju ljósi á 18. öldina gegnum augu Jóns Steingrímssonar eldklerks. Í Landvættum kannar hann af sama næmi líf og kjör í klofnu þjóðfélagi við lok 20. aldar.

Samkvæmt gagnrýnendum er stíll Ófeigs til fyrirmyndar í bókinni, bæði fyndinn og einstakur. Í Fréttablaðinu var sagt að hrein unun væri að lesa textann og tekið var undir það í Kiljunni og þá sérstaklega í köflunum sem gerast í kjötvinnslu á Kjalarnesinu.

Gunnar Már Gunnarsson á vikublaðinu Akureyri var afar hrifinn af bókinni og segir m.a. í dómi sínum: „Þessi saga er ákaflega metnaðarfull og meiri en aðeins vísir að íslenskri menningarsögu; hún er heilt lyng, nærri því svart, af þeirri menningarsögu sem við þurfum á að halda í dag. … Lystisemdir textans, fyrir utan stílgáfu höfundarins sem eiginlega er óumdeilanleg þó hún skeiði æði lausbeisluð, felast í möguleikum lesandans til að rekja upp þræði bókarinnar og rannsaka þannig sjálfur eigin nútíma.”


Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd