Steinunn Helgadóttir ein af tíu mest spennandi nýju röddunum í Evrópu

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Steinunn Helgadóttir

Steinunn Helgadóttir, höfundur bókarinnar Raddir út húsi loftskeytamannsins, hlaut á dögunum sérstaka viðurkenningu sem tilkynnt var um á Bókamessunni í London þar sem að hún var valinn í úrvalshóp tíu nýrra radda í Evrópu (e. Literary Europe Live’s New Voices from Europe 2017).

Viðurkenningin er veitt með það í huga að vekja athygli á nýjum og upprennandi rithöfundum í Evrópu sem dómnefnd þykir eiga skilið vera kynntir sérstaklega á alheimsvísu. Hluti af því er að bjóða hópnum að sækja bókmenntahátíðar víða um Evrópu m.a. Kosmopolis-bókmenntahátíðina í Barcelona um síðustu helgi.

Raddir úr húsi loftskeytamannsins hlaut einróma lof gagnrýnenda þegar hún kom út vorið 2016 og hlaut Fjöruverðlaunin en þar sagði dómnefndin m.a.: „Textinn er uppfullur af mennsku og ber vott um næmi fyrir margbreytileika sálarlífsins. Höfundur leikur sér með ólík sjónarhorn og hversdagsleikinn og fantasían mætast gjarnan með óvæntum hætti. Með hófstilltum lýsingum og flæðandi stíl nær höfundurinn sterkum hughrifum og fangar skáldskapinn í tilverunni.“ Steinunn hefur áður gefið út tvær ljóðabækur og einnig getið sér gott orð í myndlist.

Það er gríðarlegur heiður að vera valinn í þennan hóp nýrra radda í Evrópu og vonandi er þetta bara byrjunin á miklu ævintýri hjá Steinunni.

Hér má lesa meira um viðurkenninguna og hópinn.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd