Stefán Máni hlýtur Blóðdropann

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Stefán Máni

Húsið eftir Stefán Mána fékk Blóðdropa Hins íslenska glæpafélags sem besta íslenska glæpasaga ársins 2012! Við óskum höfundi innilega til hamingju með verðlaunin. Máni hefur áður hlotið verðlaunin, árið 2007 fyrir bókina Skipið.
Blóðdropinn var afhentur á aðalsafni Borgarbókasafns Reykjavíkurvið Tryggvagötu í gær. Í dómnefnd sátu Auður Aðalsteinsdóttir, Inga Magnea Skúladóttir og Rósa Björk Gunnarsdóttir.  Í umsögn þeirra segir að Húsið sé:  „vel fléttuð, hröð, spennandi og óhugguleg glæpasaga“. Höfundur sé í essinu sínu og „sá sem opnar Húsið læsist inni þar til sögunni lýkur“.
Húsið verður framlag Íslands til norrænu glæpasagnaverðlaunanna Glerlykilsins árið 2014. Við spáum því að Stefán Máni rúlli þeim upp líka.



Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd