Söluhæsta bók vikunnar

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
jfm keppendur

Bók Þórunnar Erlu-Valdimarsdóttur, Með sumt á hreinu, þar sem Jakob Frímann Magnússon lítur um öxl og ræðir sín hjartans mál er nú í fyrsta sæti metsölulista Bókabúðar Máls og menningar. Í bókinni sýnir Jakob Frímann sín mörgu andlit, talar um þau fjölmörgu verkefni sem hann hefur tekið sér fyrir hendur en einnig um sitt persónulega líf; fjölskylduna, ástkonurnar, gleði sína og sorgir.

Haldið var stórskemmtilegt útgáfupartý þegar bókin kom út fyrir tveimur vikum. Í tilefni dagsins var haldin eftirhermukeppni þar sem fimm landsþekktir grínarar hermdu eftir goðinu og uppskáru mikla kátínu. Allir stóðu sig svo vel að dómnefnd treysti sér ekki til þess að velja einn sigurvegara og voru því allir sæmdir heiðursorðunni “Frímanninn 2011.”


Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd