Snöggir danskir blettir

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Tryggðarpantur, skáldsaga Auðar Jónsdóttur, hittir frændur vora Dani heldur hressilega fyrir ef marka má gagnrýni dönsku blaðanna sem keppast nú við að fjalla um bókina. Það er ekki að undra að Danir taki verkið til sín enda skrifaði Auður söguna sem ákveðna speglun á þjóðmálaumræðu í Danmörku sem m.a. tengist hinum umdeildu Múhameðsteikningum í Jótlandspóstinum.

Gagnrýnandi fríblaðsins Metro Express gefur bókinni  fimm stjörnur og líkir henni við ekki ómerkara verk en Dýrabæ George Orwells. Kollegi hans á Literatursiden er einnig snortinn og segir m.a. að lesandinn fái marbletti á samviskuna við að lesa beitta og afhjúpandi sögu Auðar sem fer að hans sögn „… beint í kjötið á sýktustu svæðunum í sálarlífi vestræns nútíma.“ Báðir gagnrýnendur taka fram hversu auðvelt þeir eiga með að samsama sig aðalsöguhetju bókarinnar  – þó ekki sé hún kræsileg. Gagnrýnandi Weekendavisen segir bókina síðan hreinlega hættulega þó hann hrósi henni sem margslunginni skáldsögu og biðji fólk um að láta kápuna ekki hræða sig.

Tryggðarpantur kemur verst við kaunin á gagnrýnanda Politiken. Sá sárreiðasti er ósammála lofi starfsbræðra sinna og fer fremur hvössum klóm um bók Auðar og áfellist höfundinn fyrir að vera búinn að sleppa „hinu jarðbundna akkeri Íslendingsins“.

Forkólfar danskra bókasafna eru hins vegar lítt uppteknir af slíkum landhelgismálum og mæla óspart með Tryggðarpanti fyrir sína lesendur og tilgreina hana sem eina af sérstaklega góðum bókum á nýliðnu ári.

Tryggðarpantur kom út hjá Máli og menningu árið 2006 og var bókin m.a. tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.


Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd