Skrímsli í Þjóðleikhúsinu

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Nei sagði litla skrímsli
Nei sagði litla skrímsli

Milli jóla og nýárs frumsýnir Þjóðleikhúsið leikrit byggt á bókum Áslaugar Jónsdóttur, Kalle Güettler og Rakel Helmsdal um stóra skrímslið og litla skrímslið og af því tilefni kemur fyrsta bókin um þessa góðu vini, Nei! sagði litla skrímslið, út að nýju en hún hefur verið ófáanleg um árabil.

Ævintýri litla skrímslisins og stóra skrímslisins og innileg samskipti þeirra láta engan ósnortinn. Skrímslin tvö hafa eignast ótal aðdáendur en bækurnar um þau hafa komið út víðsvegar um heiminn, hlotið lofsamlega dóma og fjölda verðlauna.

Litla skrímslið og stóra skrímslið stíga nú í fyrsta sinn á leiksvið, en leikritið byggist á fyrstu bókunum og þar reynir vissulega á vináttu og hugrekki þeirra félaga. Þó að þau virðist ólíkar persónur við fyrstu sýn reynast hjörtun sem slá undir svörtum og loðnum feldunum þrátt fyrir allt slá í takt. Lítil skrímsli þurfa stundum að hrópa hátt svo í þeim heyrist og stór skrímsli geta verið lítil í sér. Þó að stundum slettist upp á vinskapinn kunna skrímslin að snúa bökum saman þegar á reynir eins og sannir vinir gera.

Litla skrímslið og stóra skrímslið er þriðja leikritið sem Áslaug Jónsdóttir skrifar fyrir Kúluna en fyrri leikrit hennar, Gott kvöld og Sindri silfurfiskur, hafa glatt fjölmörg hjörtu. Gott kvöld hlaut á sínum tíma Grímuverðlaunin sem barnasýning ársins og Sindra silfurfiski var boðið á Bibu barnaleiklistarhátíðina í Lundi og á alþjóðlega barnaleiklistarhátíð Assitej í Malmö á liðnu vori.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd