
Í tilefni af útkomu nýrrar bókar um Sigurfljóð, Áfram Sigurfljóð, færðu Sigrún Eldjárn, starfsfólk Forlagsins og Forlagið ehf. í dag Umhyggju, félagi langveikra barna, styrk að upphæð 150.000 kr. í nafni Sigurfljóðar, sögupersónu Sigrúnar sem langar að hjálpa öllum.
Um leið er Barna- og unglingageðdeild Landspítalans fært málverk af Sigurfljóð að gjöf, en myndina málaði Sigrún Eldjárn á Bókamessu í Hörpu sl. haust til styrktar Umhyggju.
Gjöfinni fylgir ósk um að Sigurfljóð geti hjálpað sem flestum, hvað sem bjátar á!
Á myndinni sjást Sigrún Eldjárn og Þórhildur Garðarsdóttir afhenda Guðrúnu Bryndísi Guðmundsdóttur, stjórnarkonu í Umhyggju og yfirlækni á BUGL, málverk og styrk upp á 150.000 kr.





