Síamstvíburar, böðull, lesbíur og tennis

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Sigurbjörg og Kristín

Þær Sigurbjörg Þrastardóttir og Kristín Ómarsdóttir hafa verið á ferð og flugi undanfarnar vikur en stuttleikrit þeirra, Boltastrákar (Bolddrenge) og Trjágarðurinn (Træhaven), hafa verið sett upp í Danmörku og Svíþjóð.

Leikritin eru sérlega áhugaverð í ljósi umfjöllunarefnanna sem eru óhefðbundin í meira lagi.

Leikrit Sigurbjargar fjallar um síamstvíbura sem undirbúa tennisleik – og vitjun augnlæknis – utanhúss. Það var sett upp á leiklistarhátíðinni CPH STAGE í Kaupmannahöfn fyrir skemmstu, með dönskum leikurum, og undir lok mánaðar af Teater inSite í Malmö, með sænskum leikurum.

Sama á við um leikrit Kristínar en það fjallar um síðasta korterið í lífi tveggja lesbískra kvenna sem þær verja með böðli sínum.

Allt er þetta partur af norrænu leikhúsverkefni á vegum Dramafronten, í samvinnu við Det Kongelige Teater.

Von er á nýrri ljóðabók, Kóngulær í sýningargluggum, eftir Kristínu með haustinu en Sigurbjörg gaf út örsagnasafnið Óttaslegni trompetleikarinn og fleiri sögur fyrir jólin í fyrra við afar góðar undirtektir.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd