Síðasti hlekkurinn slær í gegn um allan heim

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Síðasti hlekkurinn Áróra

Það var enginn eins hissa og höfundurinn Fredrik T Olsson þegar hann var búinn að selja handrit fyrstu bókar sinnar Síðasti hlekkurinn til 25 landa áður en hún kom út á frummálinu, sænsku.

Fredrik T Olsson hefur skrifað fjölmörg kvikmyndahandrit en þetta er fyrsta skáldsaga hans. Bókin er frábær lesning og það er greinilegt að höfundurinn er vanur að byggja upp spennu.  Hann byggir bókina upp ekki ólíkt spennumynd og fléttar saman sögur á meistaralegan og auðskilin hátt þar sem persónur eru kynntar til leiks smátt og smátt og fléttan lifnar fyrir augum lesandans.

Hryllileg farsótt ógnar lífi á jörðinni. Við vitum hvað er í vændum. En ekki hvernig á að stöðva hana. Síðasti hlekkurinn er sannkallað kapphlaup við tímann sem fær lesendur til þess að reyta hár sitt af spenningi.

„Ekkert hefði getað fengið mig til að halda dagbók.

Hlutirnir gerast. Tíminn líður. Lífið byrjar, rennur sitt skeið og tekur enda; og ekkert af merkingarleysinu batnar við að skrifa það niður og skoða það síðan eftir á. Og einn góðan veðurdag er öllu lokið, og ef ég veit eitthvað í minn haus þá veit ég það að þegar moldin skellur á kistulokinu yfir mér dettur ekki nokkrum lifandi manni í hug að lesa hvað ég var að afhafast einhvern mánudag í mars.

Ekkert hefði getað fengið mig til að halda dagbók.
Nema eitt.
Sú vissa að bráðlega verði enginn eftir til að lesa hana.“

SMELLTU HÉR TIL ÞESS AÐ LESA BROT ÚR BÓKINNI

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd