Sagan af bláa hnettinum fær UKLA-verðlaunin

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
ukla

Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason og Áslaugu Jónsdóttur, í þýðingu Julians Meldons D-Arcy,  hlaut í gær UKLA-verðlaunin í flokki bóka fyrir lesendur á aldrinum 7 til 11 ára og er fyrsta þýdda bókin til að hreppa þessi virtu verðlaun sem veitt eru árlega af breskum kennurum. Í umsögn dómnefndar segir: „Sagan af bláa hnettinum er frumlegt ævintýri sem mun höfða til aðdáenda Maurice Sendak, Dr. Seuss og Hans Christian Andersen.“ Og einn dómnefndarmanna, Jane  Steel, hafði þetta að segja um reynslu sína af sögunni:

„Sagan af bláa hnettinum lifnar við þegar hún er lesin fyrir heilan bekk af börnum sem finnst hugmyndin um stað það sem einungis búa börn, sem lifa saman í friði og skemmta sér konunglega, alveg frábær … Eftirvænting, hlátur og fjölmargar spurningar fylgja hverjum kafla í þessari bók sem krakkar á aldrinum 7 til 11 ára njóta með ólíkum hætti og örvar umræður um siðferði, heimspeki og náttúruvernd. Mér fannst frábært að lesa hana upphátt og það mátti heyra saumnál detta í skólastofunni. Einn strákurinn sagði: „Viltu lesa í allan dag?“

UKLA stendur fyrir The United Kingdom Literacy Association og er markmið verðlaunanna að benda kennurum á vandaðar bókmenntir fyrir börn sem eiga erindi inn í skólastofuna. Um verðlaunin í ár sagði Alayne Öztürk, forseti UKLA: „Það hversu góðar tilnefndu bækurnar í ár voru og verðlaunahafarnir, sem allir eru framúrskarandi, sýnir að það leynast fjársjóðir meðal útgáfubóka lítilla útgefenda og það er sérstaklega ánægjulegt að hafa í hópnum erlenda höfunda og teiknara nú þegar verðlaunin eru veitt í fimmtugasta sinn.“

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd