Að lesa og skrifa þykir okkur ósköp eðlilegt og sjálfsagt. En hefur það alltaf verið svo
Í bók Ragnheiðar Gestsdóttur, Svart á hvítu, er saga ritunar rakin í máli og myndum. Fjallað er um sögu leturgerðarinnar, hvenær ritun hófst á Íslandi og hvernig leturgerðir eru í ýmsum löndum.
Tungumálið er einnig skoðað og ýmsum spurningum velt upp sem tengjast skrift og ritun í tímans rás, bæði á Íslandi og í fjarlægum löndum.
Höfundur bókarinnar starfar bæði við skriftir og myndlist. Hún hefur skrifað fjölmargar kennslubækur sem og vinsælar barna- og unglingabækur.




