Kristín hefur skrifað bækur fyrir lesendur á öllum aldri, þar á meðal fjórar skáldsögur; Sólin sest að morgni (2004), Á eigin vegum (2006), Ljósa (2010) og Bjarna-Dísa (2012). Á eigin vegum var tilnenfnd til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og fyrir Ljósu hlaut Kristín bæði Menningarverðlaun DV og Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna.
Stjórnandi þingins 12. október verður Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson en spyrlar með honum verða Katrín Jakobsdóttir og Sigrún Valbergsdóttir.
Í tengslum við þingið verður haldið námskeið um verk Kristínar í Gerðubergi mánudagskvöldið 30. september. Þar mun Maríanna Clara Lúthersdóttir fjalla um bókina Ljósu og Kristín mun svo líta við og svara spurningum þátttakenda.





