Ríkisfang: Ekkert – ný prentun á leiðinni

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Sigridur Vidis

Bókin Ríkisfang: Ekkert eftir hefur sannarlega ýtt við þjóðarsálinni og ekki að ástæðulausu. Hér er rakin saga flóttakvennanna sem komu til Akraness úr flóttamannabúðum í Al Waleed í Írak árið 2008, og hún sett í samhengi við sögu Palestínumanna. Í kjölfar útgáfunnar var efnt til fjölsóttrar fyrirlestraraðar á vegum Forlagsins og Alþjóðastofnunar Háskóla Íslands sem þótti takast afar vel.

Dómar og umsagnir um bókina hafa verið mjög á einu lund. Þannig segir Magnús Þorkell Bernharðsson, sérfræðingur í málefnum Mið-Austurlanda: „[Sgiríður J. Víðis] sýnir hvað það ríkir sterkt samband milli þess sem gerist í alþjóðlegum stjórnmálum og daglegs lífs fólks.“ Agnes Bragadóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu kallar bókina “blaðamannslegt afrek”, Páll Baldvin Baldvinsson, gagnrýnandi, og Ólafur Stephensen, ritstjóri Fréttablaðsins, segir bókina báðir  “áhrifamikla” og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir mælir eindregið með henni. Svona mætti lengi telja.

Bókin hefur runnið út, fyrsta upplag er á þrotum og verið að endurprenta. Þetta er einstæð saga um áleitin mál sem snertir okkur öll – oft er sagt að þetta eða hitt sé skyldulesning og í þessu tilviki er innistæða fyrir slíkum ummælum.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd