Patterson um konur

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
James Patterson

Metsöluhöfundurinn James Patterson fékk veglega umfjöllun í Viðskiptablaðinu í gær. Þar segir meðal annars:  „Hann selur fleiri bækur en Dan Brown, Stephen King og John Grisham samanlagt. Hann yfirgaf auglýsingabransann 1985, rétt að nálgast fertugt, og hefur síðan gefið út rúmlega 70 skáldsögur. Hann slær öll heimsins met. Nítján skáldsögur röð fóru á topp metsölulista New York Times. Hann selur eina af hverjum sautján innbundnum bókum í Bandaríkjunum. Hann er mesti metsöluhöfundur heims.“ Blaðamaðurinn Hrafn Jökulsson vitnar til svara Patterson við gagnrýni kollega síns Stephen King sem sagði að bækurnar hans væru drasl: „Ég er ekki frábær stílisti. Ég er sögumaður. Þúsundir þola ekki verk mín en milljónir kunna að meta þau, sem betur fer.“

Hrafn tekur líka fram hversu vinsælar bækur Pattersons eru meðal kvenna.  „Lesendur fíla Patterson. Og það sem meira er: Patterson skrifar spennubækur, sem ná til kvenna. Og það eru konur sem kaupa meirihluta bóka í Bandaríkjunum, rétt einsog á Íslandi.“ Enda kveðst Patterson líka hrifinn af konum: „Ég ólst upp í húsi sem var fullt af konum: mamma, amma, þrjár systur og tvær læður. Ég heyri enn óm samræðna þeirra í hausnum mér. Ég fleiri konur sem vini en karla mér finnst æðislegt hvernig konur tjá sig.“


Nýjasta bók Pattersons á íslensku er Sjöundi himinn.




Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd