„Óvenjuleg og skemmtileg saga“

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Friðrika Benónýsdóttir - mynd visir.is

Það má lesa í Fréttablaðinu í dag að Friðrika Benónýsdóttir er hugfangin af Svifflugi eftir hollenska rithöfundinn Anne-Gine Goemans sem kom út hjá Forlaginu fyrir stuttu. Hún gefur bókinni fjórar stjörnur og segir meðal annars:

„Svifflug er óvenjuleg og skemmtileg saga, allt í senn þroskasaga, samfélagsgagnrýni, fróðleikur um flug og flugslys, sagnfræðileg skáldsaga, ástarsaga og harmsaga. Persónugalleríið er með eindæmum fjölbreytt og vel upp dregið og þótt sögurnar séu sumar á mörkum hins fáránlega er í þeim öllum djúpur mannlegur tónn sem lesandinn tengir við og fer að þykja vænt um persónurnar. Inn í söguna er síðan fléttað sögu frá fyrri öldum af ungu fólki sem flúði til Hollands frá Danmörku til að fá að njótast og lenti í alls kyns hrakningum og hörmungum.“ Hún rekur söguþráðinn stuttlega og segir svo: „Sagan flýtur vel áfram og þrátt fyrir persónufjöldann og útúrdúra í ýmsar áttir tekst höfundinum að halda dampi og lesandinn missir ekki áhugann eitt augnablik. Ekki einu sinni upprifjanir á fjölmörgum flugslysum og björgunaraðgerðum draga úr tærleika frásagnarinnar. Þetta fellur allt saman í einn farveg sem ber lesandann með sér, vaggar honum, skekur hann og sýnir honum hlutina frá nýjum sjónarhornum. Það er erfitt að festa hendur á því nákvæmlega í hverju töfrar sögunnar eru fólgnir en þar fer allt saman sem gerir góða sögu: áhugaverð framvinda, vel skapaðar persónur, drama, húmor og söguleg yfirsýn. Það verður enginn svikinn af því að fá sér flugferð með Gieles og samferðafólki hans.“

Loks fær þýðandinn heilan rósavönd í hnappagatið: „Ragna Sigurðardóttir hefur unnið þrekvirki með þýðingunni. Vandað og eðlilegt málfar, góður stíll og seiðandi hrynjandi sem sjaldgæft er að sjá í frumskrifuðum texta, hvað þá þýddum. Virkilega vel að verki staðið.“

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd