Ofurbrók í þrívídd?

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Aðdáendur Kafteins Ofurbrókar vörpuðu öndinni léttar síðastliðið haust þegar ljóst var að bið þeirra var á enda – eftir sex ára hlé var loksins komið framhald þessara geysivinsælu bóka um Harald, Georg og Kaftein Ofurbrók og  baráttu þeirra við verstu illmenni heims og bæjarins hrekkjóttustu hrekkjusvín. Bókin heitir Kafteinn Ofurbrók og tiktúrurnar í Tappa Teygjubrók og var ákaflega vel tekið á Íslandi eins og í öðrum hornum heimsins.

Þrátt fyrir langa þögn var þó alls ekki tíðindalaust af Ofurbrókinni því fyrir nokkru varð Dreamworks Animations – sem á heiðurinn af snilldarverkum á borð við Madagascar-röðina, How to train your Dragon, að ógleymdum myndunum um hinn sígræna Shrek ? hlutskarpast í kapphlaupi um réttinn til að kvikmynda Ofurbrókar-ritröðina.

Ekki hefur enn verið tilkynnt um frumsýningardag myndarinnar og raunar er flest á huldu um þetta verkefni enn sem komið er. En sitthvað er þó skvaldrað. Ofurbrókin mun samkvæmt þessum orðrómi lifna á tjaldinu í tölvuteiknaðri þrívídd. Óstaðfestar fregnir herma að Hollywood-leikarinn John C. Reilly muni ljá Kafteininum rödd en Diedrich Bader (sem er m.a. þekkt rödd úr Madagascar-myndunum), mæli fyrir munn þeirra Tappa Teygjubrókar og Pésa Prumpubrókar en tónlistarkonan Katy Perry (rödd Strympu í Strumpamyndunum) fyrir óvættina Brjálaða brókarskassið. Þá eru þeir Jay Barughel og Andy Richter, sem t.d. hafa ljáð teiknimyndapersónum í How to train your Dragon og Madagascar raddir, sagðir eiga að tala fyrir Georg og Harald.

Dav Pilkey er með sitthvað á prjónunum þessa dagana og stefnt er að útgáfu tíunda skáldverksins um Kaftein Ofurbrók í íslenskum búningi á þessu ári. Vinir Ofurbrókarinnar munu því hafa nóg að lesa á meðan þeir bíða eftir að komast í bíó!

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd