Öðlingurinn 2010

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Fræðslu – og söfnunarátaki til styrktar Neyðarmóttöku vegna nauðgana  hefur nú verið hleypt af stokkunum. Verkefni þetta er kennt við Öðlinginn 2010 en í farabroddi þess eru nokkrir landsþekktir öðlingar. Í hópnum eru m.a. Rúnar Kristinsson knattspyrnustjóri, Karl Sigurðsson tölvunarfræðingur og Baggalútur, Höskuldur Sæmundsson leikari, Atli Fannar Bjarkason blaðamaður, Snorri Ásmundsson myndlistarmaður, Sturla Sighvatsson framkvæmdastjóri, Lárus R. Haraldsson verkefnisstjóri og Víðir Guðmundsson leikari.

Við hvetjum þig til að kynna þér málið og kíkja á öðlingana á heimasíðunni Öðlingurinn.is

Neyðarmóttakan hefur ekki farið varhluta af ítrekuðum niðurskurði í heilbrigðiskerfinu undanfarin ár þó þar sé um að ræða ómissandi þjónustu. Söfnunarátakið felst ekki aðeins í því að styðja við það starf sem þar fer fram heldur einnig í því að vekja athygli á kynbundnu ofbeldi hérlendis. Af þessu tilefni rennur hluti af ágóða bókarinnarÁ mannamáli eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur til söfnunarsjóðsins en í bókinni er fjallað um stöðu ofbeldismála á Íslandi með sérstakri áherslu á kynbundið og kynferðislegt ofbeldi. Markmið hennar er m.a. að vinna bug á ranghugmyndum um þetta viðkvæma efni. Bókin hefur hlotið einróma lof og margskonar viðurkenningar, m.a. tilnefningu til Íslensku bókmenntaverðlaunanna.

Á bóndadaginn var póstlagt bréf til íslenskra öðlinga og þeir hvattir til þess að leggja þessari baráttu lið. Átakið stendur til konudagsins, 21. febrúar nk., en á meðan því stendur munu öðlingarnir hver með sínum hætti vekja athygli á málefninu og bjóða fólki að styrkja átakið í gegnum heimasíðuna Öðlingurinn.is. Á konudaginn 2010  mun kyndillinn færast frá bónda til konu; þegar kvenkyns öðlingar taka við átakinu úr höndum öðlings karla og halda baráttunni áfram.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd