Í næstu viku er von á tveimur spánýjum og afskaplega spennandi bókum tveggja spánýrra höfunda! Hér kveða sér hljóð nýjar raddir í íslensku bókmenntalífi en um er að ræða þau Soffíu Bjarnadóttur og Sverri Norland.
Kvíðasnillingarnir er fyrsta skáldsaga Sverris Norland og hlaut nýræktarstyrk frá Miðstöð íslenskra bókmennta. Hér helst óvenjuleg stílgáfa í hendur við gráa íróníu, einlæga samkennd og óþrjótandi hugmyndagleði. Þetta er bók sem á erindi við samtíma sinn, full af hlýju, mannskilningi, gleði og töfrum.
Í sögu þriggja drengja, sem brátt verða unglingar og fyrr en varir fullorðnir menn, dregur höfundur upp frumlega og sprellfjöruga mynd af hlutskipti karla í samtímanum. Lesandinn flakka á milli áratuga í huggulegri pappírstímavél; dregur að sér moldardauninn í Hostel Torfbæ, heyrir kjökur og blús á Aumingjahælinu, kastar mæðinni í Griðarstað stráka og kynnist aragrúa eftirminnilegra persóna, þar á meðal fríðum flokki af lævísum draumaprinsessum sem hrista upp í viðkvæmu tilfinningakerfi kvíðasnillinganna þriggja. Hversu mikið hnjask þolir eitt strákshjarta?
Segulskekkja Soffíu Bjarnadóttur er saga um lífsviljann og þá krákustíga sem manneskjan fetar í leit að sátt við eigin tilvist. Soffía Bjarnadóttir er menntuð í bókmenntafræðum, ritlist og leikhúsfræðum og hefur starfað við skriftir, háskólakennslu, bókmenntarýni og varðveislu ritverka. Segulskekkja er hennar fyrsta skáldsaga.
Kona fær óvænt símtal sem sendir hana í ferðalag frá Karijoki til Flateyjar um miðjan vetur til að mæta í jarðarför. Í vetrareyjunni rekur sálma, drauma og minningar á land sem þvinga hana til að rýna í sitt eigið sár og horfast um leið í augu við hina goðsagnakenndu Siggý – móðurina sem rís reglulega úr ösku með sólina í höfðinu.
Við hvetjum alla sanna bókaunnendur til þess að sperra eyrun því hér eru höfundar framtíðar á ferð!





