Stella Blómkvist er mætt aftur til leiks!

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
skuggamynd

Í dag kemur út ný bók eftir og um Stellu Blómkvist. Það eru heil sex ár síðan það heyrðist síðast frá töffaranum sem tekst á við andstæðinga sína með spakmæli mömmu gömlu á vörunum. Enn hefur ekki komið fram hver er á bakvið höfundanafnið Stella Blómkvist, en margar skemmtilegar kenningar hafa komið upp síðustu árin. Staðfesting á þeim hefur aftur á móti ekki fengist.

Nýja bókin ber titilinn Morðið á Bessastöðum, og er það sjöunda bókin um og eftir Stellu. Í bókinni tekst Stella á við ólík verkefni. Hún verður við ósk deyjandi manns að finna barn sem hann fékk aldrei að hitta, hún flækist inn í nektardansheiminn og mögulegt mansal, hún þræðir krókaleiðir valdakerfisins til komast til botns í morðmáli á Bessastöðum og hún kannar litháískan dóphring á Íslandi. Þess á milli sinnir hún verkefnum einstæðrar móður, daðrar við bæði kynin og slettir í sig viský.


Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd