Gagnrýnandi Fréttablaðsins, Sigurður Hróarsson, er í skýjunum yfir Ljóðasafni Ingibjargar Haraldsdóttur og fjallar ítarlega um verkið í menningarblaði síðustu helgi. Sigurður segir bókina skyldulesning fyrir alla ljóðvini, konur og karlana ekki síst og gefur verkinu fjórar stjörnur. Í dómi sínum skrifar Sigurður meðal annars: „Kennitákn þeirra [ljóða Ingibjargar] er skáldlegur þroski; tær og fullsköpuð orðlist sem þó liggur mikið á hjarta. Einkennandi er hversu mögnuð og víðtæk hughrif þau vekja með einföldum orðum og sparsömum brögðum, hversu skír þau eru og einföld (óflókin) en þó ávallt nýmæli; afhjúpa látlaust hið óvænta, valda hugljómun sem í senn er vitræn hrifning og tilfinningaleg …“
Mögnuð og kærkomin
- Höfundur: Ritstjórn Forlagsins




