Minningarmálþing um Matthías Viðar Sæmundsson

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Matthías Viðar

Laugardaginn 21. júní efnir Bókmennta- og listfræðastofnun Háskóla Íslands til minningarmálþings um Matthías Viðar Sæmundsson, sem starfaði sem dósent í íslenskum bókmenntum við Háskóla Íslands.

Matthías Viðar lést fyrir aldur fram árið 2004 en hefði orðið sextugur þann 23. júní næstkomandi. Með ritverkum sínum, kennslu og fyrirlestrum hafði Matthías Viðar sterk áhrif á mótun nútímabókmenntafræði hér á landi og skrif hans eru fræðimönnum stöðugur innblástur til rannsókna.

Á málþinginu mun hópur samstarfsfélaga, fyrrverandi nemenda og vina flytja erindi til minningar um Matthías Viðar, þar sem þeir ganga til samræðu við fræðaheim hans. Minningarmálþingið verður haldið í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands og stendur yfir frá kl. 10:00 til 16:30.

Dagskrá:

10:00-11:30 Fyrsti hluti

  • Bergljót Soffía Kristjánsdóttir: „„hleyptu af / eins og fara gerir“. Um eitt ljóða Sigfúsar Daðasonar, íróníu, samfélag, sögu og tilvist“.
  • Hermann Stefánsson: „Spegill melankólíunnar: Um argentínska skáldið Alejöndru Pizarnik”
  • Sveinn Yngvi Egilsson: „Svarti engillinn: Depurð og sköpun á 17. öld“

11:30-13:00 Hádegishlé

13:00-14:30 Annar hluti

  • Dagný Kristjánsdóttir: „Ástin músanna er köld eins og þær sjálfar“
  • Þröstur Helgason: „Thor og Dieter. Módernísk(t) umbrot”
  • Birna Bjarnadóttir: „Könnunarleiðangur á töfrafjalli – brot úr skýrslu“

14:30-15:00 Kaffihlé (boðið verður upp á léttar kaffiveitingar)

15:00-16:30 Þriðji hluti

  • Soffía Auður Birgisdóttir: „Flakk: Um sjálfstjáningu Þórbergs Þórðarsonar“
  • Guðmundur Sæmundsson: „Er leikin knattspyrna á himnum? Um tengsl íþrótta og trúar“
  • Ármann Jakobsson: „Skrímslin fara á kreik um leið og skynsemin sofnar: Táningspiltur sér gandreið“
Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd