Ný bók eftir Kristínu Ómarsdóttur, Milla, kom út í september. Bókin hefur fengið glæsilega dóma, fjórar stjörnur frá tveimur gagnrýnendum og lofsamleg ummæli.
Þórunn Hrefna hjá Fréttablaðinu segir að bókin sé „skemmtileg, frumleg og fagurlega skrifuð. Bætir, hressir og kætir.” Anna Lilja hjá Morgunblaðinu fagnar því hve óvænt bókin er og að lesandinn viti aldrei hvað gerist á næstu síðu. Fríða Björk flutti dóm í Víðsjá og segir frásagnarmáta Kristínar vera furðulegan, hversdagslegan og fyndinn.
Allt frábærir dómar um ævintýralega Reykjavíkursögu sem er í senn létt og þung, glaðleg og sorgleg.





