
Í bókinni Konungur flónanna er samansafn af skopteikningum Halldórs Baldursson sem birst hafa á allra síðustu misserum. Hver man endurreisnir, forsendubresti, gjár milli þings og þjóðar, gullkálfa, hátæknisjúkrahús, höfuðstóla, leiðréttingar, lekamál, upp- og niðurfærslur, silfurskeiðar, skjaldborgir, upprisur – að ógleymdum blessuðum makrílnum? Halldór kryfur hér tímann með flugbeittum teiknipenna sínum fyrir þjóðina að leggja á gullfiskaminnið sitt.





