Það sem þeir segja þér ekki um kapítalisma!

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Ha-Joon Chang

Í tilefni útgáfu bókarinnar 23 atriði um kapítalisma sem ekki sagt frá mun höfundur hennar, hagfræðingurinn Ha-Joon Chang, halda erindi í Lögbergi, stofu 101, fimmtudaginn 6. september kl. 14.

Í pallborði verða Jóhann Páll Árnason, heimspekingur og heiðursdoktor við HÍ,  Stefán Ólafsson, forstöðumaður Þjóðmálastofnunar og Páll Skúlason, prófessor í heimspeki. Fundarstjóri verður Björn Þorsteinsson, heimspekingur.

Ha-Joon Chang er sérfræðingur í þróunarhagfræði og dósent í stjórnmálahagfræði þróunarlanda við háskólann í Cambridge. Hann hefur ritað nokkrar bækur og fjölda greina um hagfræði, bæði fræðilegar og á léttari nótum, til dæmis Kicking Away the Ladder og Bad Samaritans. Í 23 atriði um kapítalisma sem ekki sagt frá eru viðteknar hugmyndir okkar um hag- og stjórnkerfi heimsins teknar fyrir ein af annarri og sýnt fram á að þær standast ekki skoðun. Í bókinni sýnir Ha-Joon Chang fram á að hægt er að breyta til, fara aðrar og betri leiðir til að bæta samfélagið – og endurskoða margt sem almennt er talið satt og rétt.

Bókin hefur vakið gífurlega athygli hvar sem hún hefur verið gefin út enda þykir hún djörf, auðskilin, áhrifamikil og efnið sett fram á húmorískan hátt.

Allir velkomnir á málstofu!


Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd