Málarinn fær fjórar stjörnur

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Ólafur Gunnarsson

Kristján Hrafn Guðmundsson skrifar afar loflegan ritdóm um nýja skáldsögu Ólafs Gunnarsson, Málarinn, í DV í dag. Hann greinir söguna af glöggskyggni og segir m.a.: „Saga Ólafs gerist um miðjan níunda áratuginn og fléttar hann eitt stærsta þjóðfélagsmál þess tíma, Hafskipsmálið, inn í atburðarásina. Ferst honum það ansi vel úr hendi, sama og sagt verður um fléttu sögunnar heild.

Nokkur reyfarabragur er á sögunni (glæpir af ýmsum toga, morð, ofbeldi, falsanir, innbrot, löggur og lögfræðingar, fangelsi og geðdeild, svik og flótti) og má segja að hún dansi á mörkum fagurbókmennta og spennusögu. Sem er einmitt vel til fundið í ljósi umfjöllunarefnisins, vangaveltan um hvað geri list að list, hvar séu mörkin milli listaverks sem hefur eitthvað gildi og verks sem er stimplað sem söluvara eða einnota. Davíð segir á fleiri en einum stað að hann hafi látið af sínum eigin listrænu kröfum og hreinlega málað viljandi undir getu til að selja verkin sín, til að framfleyta fjölskyldunni. Höfundurinn setur þannig einnig fram spurningar á borð við hvort þannig sé málum háttað hjá einhverjum listamönnum, hvort viljandi sé unnið „undir getu” til að eiga fyrir salti í grautinn.“

Í lokin segir Kristján Hrafn: **** „Ólafur stefnir … á flottan hátt saman hinu stöðuga og hinu fljótandi lífi Davíðs, þegar allt fer á flot upplifir listmálarinn jafnvel enga stoð í þeim sem áður voru hans stoð og stytta. Listin verður hans eina litla sker í lífsins ólgusjó, því lífið er ekki eins og konfektkassi.“

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd