Léttleiki æskunnar, örlögin og ástin

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Þóra biskups

Stúlkan sem sagðist ævinlega til í „sukkið“, gat elskað tvo menn í einu, kúrði til klukkan ellefu og sat annars hugar undir guðs orði,  er komin hátt á sjötugsaldur. Hún er komin óravegu frá hinu óhaggandi samfélagi embættismanna um miðja nítjándu öld; hinum formfasta heimi landshöfðingja tímans. Óravegu frá léttleika æskunnar í húsinu á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis, húsinu sem brátt mun brenna til kaldra kola.

Stúlkan er biskupsdóttirin Þóra Pétursdóttir en saga hennar, rituð af Sigrúnu Pálsdóttur, er nú komin út. Þarna segir af kjólum og karlmönnum, draumum og glæstum vonum; grátbroslegum stundum í lífi lítillar þjóðar. Finndu söguna lifna við og kynnstu einni af fáum aðalsmeyjum Íslands, stílfimi formæðra okkar og fortíðinni sem við erum svo fljót að gleyma.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd