Lene Hansson með ráðgjöf í Baðhúsinu

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Lene Hansson

Nú fá Íslendingar tækifæri til að hitta Lene Hansson í eigin persónu og sitja námskeið hjá henni eða fá persónulega ráðgjöf og heilsuáætlun. Lene Hansson er einn fremsti næringarráðgjafi Danmerkur og höfundur metsölubókarinnar Léttara og betra líf – átta vikna heilsuáætlun, sem kom út síðastliðið vor.

Námskeið hjá Lene Hansson í Baðhúsinu / 20. september

Lene fjallar um sýru/basa-jafnvægi sem kemur jafnvægi á orku og þyngd. Einnig verður fjallað um fæðusamsetningarkerfi sem hjálpar líkamanum að hreinsa sig af úrgangsefnum, bætir ónæmiskerfið og hjálpar þér að léttast – til frambúðar!

Persónuleg ráðgjöf hjá Lene Hansson í Baðhúsinu / 21. – 23. september

Klukkustundar ráðgjöf þar sem farið er yfir matardagbók síðastliðna viku. Lene spyr um heilsufar þitt og gefur ráð um fæðusamsetningu. Með réttri fæðusamsetningu er hægt að vinna bug á háum blóðþrýstingi, ofnæmi, astma, ofþyngd, húðvandamálum og meltingartruflunum.

Nánari upplýsingar fást hjá Baðhúsinu, sími: 515-1900 / mottaka@badhusid.is

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd