Kvöldganga fyrir krakkana

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Þórarinn Leifsso

Borgarbókasafn Reykjavíkur stendur fyrir fjölskyldugöngu í kvöld,  fimmtudagskvöldið 14. júlí kl. 20. Sigrún Jóna Kristjánsdóttir og Sunna Björk Þórarinsdóttir leiða gönguna, en í henni verða spennandi nýlegar bækur fyrir börn kynntar á söguslóðum sínum víðs vegar í miðbænum. Einnig munu rithöfundarnir Þórarinn Leifsson og Margrét Örnólfsdóttir hitta göngugesti, Þórarinn á slóðum hinnar kostulegu ömmu Huldar og Margrét við Hótel Holt. Meðal annarra viðkomustaða eru Hólavallagarður, Hljómskálagarðurinn og Reykjavíkurtjörn og verður spjallað um og lesið úr bókum eftir nokkra af okkar vinsælustu höfundum.

Þátttakendur geta svo líka spreytt sig á léttum leik í göngunni sem gengur út á það að koma auga á hvar Valli nokkur er staddur núna. Þrír heppnir krakkar fá síðan bókina um hann í verðlaun, Hvar er Valli núna, en hún kom út fyrir stuttu.

Gangan tekur ríflega klukkustund og eru allir krakkar og fylgdarfólk þeirra velkomin. Lagt verður af stað frá Borgarbókasafni í Grófarhúsi á slaginu kl. 20 og er þátttaka ókeypis.



Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd