Komdu og hittu Jussi Adler-Olsen

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Jussi Adler-Olsen


Jussi Adler Olsen verður á höfundakvöldi í Norræna húsinu 30.ágúst kl. 20.00 og eru allir velkomnir að koma og hlýða á danska krimmakónginn. Árni Matthíasson blaðamaður mun ræða við Jussi um verk hans og höfundaferil. Einnig mun höfundurinn lesa upp úr nýjustu bók sinni, Flöskuskeyti frá P, sem er nýkomin út í íslenskri þýðingu. Hægt verður að kaupa bókina í Norræna húsinu og fá hana áritaða af Jussi Adler-Olsen.

Léttar veitingar verða í boði danska sendiráðsins og ókeypis aðgangur.

Flöskuskeyti frá P er þriðja bók Jussi Adler-Olsen sem gefin er út á íslensku og hlaut hún Glerlykilinn sem besta norræna glæpasagan árið 2010.  Konan í búrinu og Veiðimennirnir hafa áður komið út á Íslandi. Jussi Adler-Olsen á miklum vinsældum að fagna, bæði í Danmörku og annars staðar í heiminum. Verið er að gera kvikmyndir eftir bókum hans í Danmörku og hefur hann átt sæti á metsölulistum víða um heim. Danskt kvikmyndalið mun fylgja Jussi til Íslands þar sem verið er að gera heimildarmynd um kappann og ferðalög hans víða um heim til að fylgja bókum sínum eftir.


Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd