Kjartan og Snæbjörn fá Íslensku Barnabókaverðlaunin

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Kjartan Yngvi Björnsson og Snæbjörn Brynjarsson

Í dag kemur út ný bók undir merkjum Íslensku barnabókaverðlaunanna: Hrafnsauga eftir Kjartan Yngva Björnsson og Snæbjörn Brynjarsson. Þetta er fyrsta bók höfundanna og jafnframt fyrsta bókin í sagnaflokknum Þriggja heima sögu. Að mati dómnefndar er Hrafnsauga  „spennandi og frumleg saga þar sem áhugaverðar persónur takast á við krefjandi aðstæður í vel sköpuðum ævintýraheimi.“

Kjartan og Snæbjörn eru báðir 28 ára og félagar frá því úr menntaskóla, Kjartan er bókmenntafræðingur og nemi í ritlist og Snæbjörn leikskáld og nemi í japönsku.

Að Íslensku barnabókaverðlaununum standa auk Forlagsins fjölskylda Ármanns Kr. Einarssonar, Barnavinafélagið Sumargjöf og IBBY á Íslandi og skipa fulltrúar þessara aðila dómnefnd. Á lokasprettinum bættust svo tveir nemendur úr Austurbæjarskóla í hópinn. Árlega er auglýst eftir handritum í samkeppnina og í ár bárust 63 handrit í keppnina, verðlaunaféð er 500.000 krónur. Næsti skilafrestur handrita er 1. febrúar 2013.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd