Kínverjar lesa Bláa hnöttinn!

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Sagan af bláa hnettinum eftir Andra Snæ Magnason, í myndlýsingu Áslaugar Jónsdóttur, er komin út í Kína. Innbundna bókin hefur líka verið uppseld hérlendis um nokkra hríð en von er á sjöttu prentun hennar í verslanir síðar í vikunni.

Áður hefur Sagan af bláa hnettinum verið seld til Japans, Frakklands, Spánar, Ítalíu, Þýskalands, Danmerkur, Svíþjóðar, Noregs, Finnlands, Færeyja, Grænlands, Eistlands, Litháens, Rússlands, Tælands, Kóreu, Júgóslavíu, Rúmeníu, Ungverjalands og Grikklands. Það hefur því 21 land tryggt sér réttinn að bókinni og dreifing nær til fjölda annarra landa. Ekkert lát virðist á vinsældum bókarinnar og hún er til skoðunar hjá útgefendum um heim allan.

Sagan af bláa hnettinum er fyrir löngu orðin víðförulst íslenskra barnabóka  síðari tíma. Verkið hefur einnig hvarvetna vakið hrifingu lesenda og  má nefna að franski útgefandi verksins, Gallimard, sem er eitt  virtasta forlag þar í landi, kallar bókina „Litla Prinsinn þessa árþúsunds“.  Þegar bókin kom út í Japan fékk útgefandinn frú Vigdísi Finnbogadóttur og hljómsveitina múm til að skrifa umsögn um bókina. Var umsögnin prentuð á sérstakan borða og sett utan um hvert eintak. Hefur það vakið frekari athygli á bókinni enda bæði Vigdís og múm vel þekkt þar í landi.

Sagan af bláa hnettinum kom út hjá Máli og menningu árið 1999 og hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin sama ár í flokki fagurbókmennta, fyrst barnabóka. Á dögunum hlaut bókin líka „Verðlaun verðlaunanna“ þegar lesendur vefsins Mbl.is völdu hana bestu verðlaunabók Íslensku bókmenntaverðlaunanna í vinsældakosningu í flokki fagurbókmennta. Þess má geta að Draumlandið eftir Andra Snæ vann sömu verðlaun í flokki rita almenns eðlis.

Sagan hefur síðan unnið til ýmissa annarra verðlauna og tilnefninga. Hún hlaut Vest-Norrænu  barnabókaverðlaunin, pólsku Janusz Korczak- heiðursverðlaunin, tilnefningu til Norrænu barnabókaverðlaunanna og fleira. Leikrit byggt á bókinni vann til verðlauna og var sýnt í Þjóðleikhúsinu árið 2001 við miklar vinsældir og var að auki sýnt  daglega í tvo mánuði í Toronto í Kanada vorið 2005 í Lorraine Kimsa Theatre for Young People. Uppfærslan var tilnefnd til fimm verðlauna á helstu leiklistarverðlaunahátíð Kanada, Dora Mavor-Moore-verðlaunanna, fyrir bestu búningahönnun, bestu sviðshönnun, besta danshöfund, besta leikstjóra og bestu leiksýningu ársins. Verkið hlaut verðlaunin fyrir bestu leikmynd og búninga. Toronto er önnur stærsta leikhúsborg í Norður-Ameríku á eftir New York. Leikritið hefur verið sýnt víðar og var sett upp í annað sinn í  Finnlandi vorið 2009, við Borgarleikhúsið í Vasa en fyrri uppfærslan þar í landi var á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu í Lahti en salurinn er með þeim stærstu í Finnlandi. Einnig var verkið sett upp í Pakistan.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd