Keikó, Kio Briggs og 2000 vandinn?

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Öldin okkar 1996-2000

Aldirnar eru sígildar og einstaklega vinsælar bækur þar sem Íslandssögunni eru gerð skil á aðgengilegan hátt í máli og myndum. Helstu atburðir hvers árs eru raktir í stuttum greinum sem höfða til lesenda á öllum aldri. Nú er komin út ný bók í þessari geysivinsælu ritröð þar sem „öldinni“ er lokað en umfjöllunarefni hennar eru árin 1996-2000. Þar geta lesendur rifjað upp eftirminnileg atvik og viðburði í sögu þjóðarinnar, eins og fyrstu menningarnóttina og fyrstu hinsegin gönguna, andstöðuna við Hvalfjarðargöngin, undirheimastríð í Reykjavík,  guðlastið í Spaugstofunni og havaríið í kringum Fjölni Þorkelsson – svo fátt eitt sé nefnt. Ritstjóri er Guðmundur Magnússon.

Ennfremur koma nú út sjö eldri bækur í seríunni sem verið hafa uppseldar árum saman. Því gefst aðdáendum ritraðarinnar kjörið tækifæri til þess að bæta í safnið því nú eru aldirnar allar fáanlegar aftur.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd