Kaupið bækur!

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Bergrún Íris Sævarsdóttir

Á Pjattrófunum er viðtal við Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur teiknara um bókina þeirra Evu Þengilsdóttur, Gerðu eins og ég, og sitthvað fleira. Lokaorðin ylja hverjum bókaormi um hjartað og hefur vonandi áhrif á pjattrófur landsins: „Kaupið bækur fyrir börnin ykkar frekar en dýr merkjaföt. Ef þau eru vel lesin þá vegnar þeim vonandi vel í lífinu og þá geta þau keypt sér dýru merkjafötin sjálf fyrir háu launin sín!“

Gerðu eins og ég – Hvati og dýrin er fjörug bók sem hvetur börn, og þá fullorðnu sem lesa fyrir þau, til að hreyfa sig eins og dýrin í dýragarðinum. Og það virkar ef marka má fyrstu viðbrögð lesenda. Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor við íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild við Menntavísindasvið HÍ – og fótboltaþjálfari, las bókina fyrir son sinn og lýsir viðbrögðunum með þessum orðum: „Sem þriggja barna móðir hef ég lesið mjög margar bækur fyrir börnin mín og er þessi bók sú eftirminnilegasta, sérstaklega vegna viðbragða þriggja ára sonar míns. Hann var mjög spenntur allan tímann og rak á eftir mér við lesturinn, sem ég man ekki að hafi  gerst áður. Um leið og bókin var búin sagði hann: „Aftur, aftur. Mamma, lesaðu núna, lesaðu núna, mamma!“ Og hann hætti ekki fyrr en ég las bókina aftur. Svo hoppaði hann og skoppaði – og ég líka – og við skemmtum okkur konunglega. Ég gef þessari bók mín bestu meðmæli.“

Anna H. Ágústsdóttir, leikskólastjóri segir að fyrstu orðin sem komu upp í hennar huga eftir lestur bókarinnar hafi verið „fræðsla, forvörn og hvatning“ og bætti við:  „Allir vita um mikilvægi þess að hreyfa sig, mikilvægi þess að fræða börnin okkar og eyða tíma með þeim, ekkert kemur í staðinn fyrir það. Hvati og dýrin skila þessu öllu til lesandans á einstaklega áhrifamikinn og hrífandi hátt. Þetta er frábær bók fyrir leikskóla, ég hvet jafnframt alla foreldra til að fara með Hvata og börnunum sínum í einstaklega skemmtilega dýragarðsför.“
Leifur Geir Hafsteinsson, eigandi heilsuræktarstöðvarinnar CrossFit Sport og doktor í sálfræði, las bókina fyrir börnin sín og hafði þetta að segja að lestri loknum: „Dásamleg bók, falleg, hnyttin, lifandi og krúttleg. Hvati er einlægur, velmeinandi og auðvitað hvatvís hvolpur sem öllum mun þykja vænt um. Frábærlega útfært hjá Evu hvernig hreyfing og leikir eru fléttaðir inn í söguna. Eina takmörkun bókarinnar er að hún er allt of fjörug og skemmtileg sem róandi kvöldlesning fyrir svefninn!“


Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd