Jólalegt ljóð um girnd heimasætunnar

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins

Rithöfundurinn Gerður Kristný flutti nýtt ljóð þegar tendrað var á ljósum Oslóartrésins við Austurvöll á dögunum í tengslum við árlegt átak Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra.  Ljóðið er tileinkað Ketkrók, og er hluti verkefnis sem Gerður vann ásamt iðnhönnuðinum Hrafnkatli Birgissyni. Úr varð jólaórói sem prýðir nú tréð við Austurvöll, Hrafnkell fæst við stálið en Gerður við orðin.

Ljóð Gerðar flytur lesandann aftur í tímann, inn í baðstofuna þar sem Ketkrókur sjálfur er að myndast við að krækja sér í bita. Hvort hér er komin nýtt afbrigði af baðstofu-rómantík skal ósagt látið,  en dæmi hver fyrir sig.

Óróinn er fáanlegur í verslunum víða um land og rennur ágóði sölu hans til Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra.






Kjötkrókur kemst í feitt

Norðanbálið hamast

svo hvorki heyrist

spunahljóð né spjall.


Húsbændur loka að sér

í rekkjunni.

Engin leið að vita

hvort það er ástin eða óveðrið

sem lætur allt leika á skjálfi.


Heimasætan grúfir sig

yfir askinn,

slafrar í sig lambi

og laumast til að góna á

nýfermdan niðursetninginn.


Það sem menn stælast

af dúntekju og dagróðrum!


Svo er bitinn búinn

en meira bíður

inni í eldhúsi.


Göngin fyllast af

forvitnum draugum

(aðallega fyrri ábúendur

og stöku útburður).


Stúlkan olnbogar sig

að hlóðunum

og lyftir upp lokinu.


Þá berst brölt af sperru,

spyrnt er í háfinn.

Krókur sígur

niður úr kófinu,

glampandi öngull

í myrkurhyl.

Sterklegar greipar

ljúkast um færið.


Stúlkan bregst skjótt við,

handtökin snör eftir

spuna og gegningar.

Hún grípur krókinn

og festir við klukku og kot.


,,Hirtu ekki um kjötið!

Steldu mér!

Ég er steini léttari!”




Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd