Jólabækurnar ylvolgar úr vélunum

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Jólabækur!

Nú er gósentíð fyrir lestrarhesta því jólabækurnar hreinlega streyma í bókaverslanir um þessar mundir. Glöggir gestir bókabúða hafa án efa rekið nefið í nýjar bækur Jónínu Leósdóttur, Þórunnar Valdimarsdóttur og Árna Þórarinssonar og það hefur vart farið fram hjá nokkrum að út er komin ný bók eftir Arnald Indriðason. Við vekjum sérstaka athygli á nýjum röddum á þessari vertíð, skáldsaga Hugrúnar Hrannar Kristjánsdóttur, Stolnar raddir, er nýkomin út og í dag kemur út bókin Skáldsagan um Jón eftir Ófeig Sigurðsson sem þegar hefur látið að sér kveða á skáldasviðinu. Það hefur Kristín Eiríksdóttir einnig gert en nýtt smásagnasafn hennar, Doris deyr, mun án efa afla henni fjölda aðdáenda.

Bók Einars Kárasonar, Mér er skemmt, er þegar farin að gera stromandi lukku meðal lesenda og sem og skáldsaga Kristínar Steinsdóttur, Ljósa, sem hrærir hjörtu hvers sem hana les.  Fylgist vel með Forlagsvefnum þar finnið þið upplýsingar um allra nýjustu bækurnar!

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd