Íslensku barnabókaverðlaunin 2010

  • Höfundur: Ritstjórn Forlagsins
Ertu Guð afi?

Þorgrímur Þráinsson hlaut í dag Íslensku barnabókaverðlaunin 2010 fyrir bók sína Ertu Guð, afi? Bókin kemur út hjá Vöku-Helgafelli í dag. Þorgrímur er meðal þekktari rithöfunda þjóðarinnar og hafa barna- og unglingabækur hans notið fádæma vinsælda í tvo áratugi. Fyrsta bók Þorgríms, Með fiðring í tánum, kom út árið 1989 og nú telja bækur hans á þriðja tug. Þetta er í annað sinn sem Þorgrími hlotnast þessi verðlaun en þau hlaut hann árið 1997  fyrir söguna Margt býr í myrkrinu. Auk Íslensku barnabókaverðlaunanna hefur Þorgrímur hlotið Barna- og unglingabókaverðlaun Skólamálaráðs Reykjavíkurborgar og Bókaverðlaun barnanna fyrir síðustu bók sína Núll, núll 9. Von er á framhaldi þeirrar sögu nú fyrir jólin.

Íslensku barnabókaverðlaunin hafa fest sig vel í sessi síðan þau voru veitt fyrst 1986 og margir af okkar dáðustu barnabókahöfundum hafa unnið til þeirra. Af þeim má nefna Herdísi Egilsdóttur, Iðunni Steinsdóttur, Brynhildi Þórarinsdóttur og Friðrik Erlingsson. Þátttakan í ár var afar góð og bárust á fjórða tug handrita í keppnina. Dómnefndin var skipuð fulltrúum frá Forlaginu, IBBY á Íslandi, Barnavinafélaginu Sumargjöf og erfingjum rithöfundarins Ármanns Kr. Einarssonar, sem stofnaði til verðlaunanna, auk tveggja nemenda úr Laugalækjarskóla. Verðlaunaféð nemur 500.000 krónum.

Samkeppnin um Íslensku barnabókaverðlaunin er haldin á hverju ári. Skilafrestur á handritum sem keppa um verðlaunin 2011 er 1. febrúar næstkomandi.

Deila:

Fleiri fréttir

Arndís og Sigrún tilnefndar til ALMA-verðlaunanna 2027

Það er gleðiefni að tveir höfundar Forlagsins, Arndís Þórarinsdóttir og Sigrún Eldjárn, eru tilnefndar til alþjóðlegu ALMA-verðlaunanna 2027. Tilnefningarnar eru viðurkenning á framlagi þeirra til barna- og ungmennabókmennta. ALMA-verðlaunin, Astrid Lindgren Memorial Award, eru kennd við sænska barnabókahöfundinn Astrid Lindgren og veitt árlega einstaklingi eða stofnun fyrir mikilvægt framlag til barnabókmennta. Að þessu sinni eru…

Síðasti dagurinn hlýtur Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin 2026

Síðasti dagurinn eftir Matthildi Yrsu Sigurðardóttur, Þórunni Rakel Gylfadóttur og Diddu Flygenring hefur hlotið Sólfaxa – íslensku barnabókaverðlaunin árið 2026 Sólfaxi – íslensku barnabókaverðlaunin eru veitt fyrir handrit að myndríkri bók. Samkeppnin er nafnlaus og senda þátttakendur gögn inn undir dulnefni. Metþátttaka var í keppninni að þessu sinni en rúmlega fimmtíu handrit bárust. Eftir að…

Nýjar raddir 2027

Forlagið efnir í tíunda skipti til handritasamkeppni undir heitinu Nýjar raddir. Óskað er eftir handritum eftir höfunda sem ekki hafa gefið út fleiri en eitt prósaverk áður hjá atvinnuforlagi. Handritið skal vera á íslensku og einn samfelldur texti eða safn styttri texta og á lengd við nóvellu eða stutta skáldsögu (um 15.000 til 30.000 orð),…

Stjörnu-Sævar og Villi Neto ræða sólmyrkva í Bókahillunni

Í nýjasta þætti Bókahillunnar, hlaðvarps Forlagsins um bækur, höfunda og bókmenntir, ræðir Villi Neto við Stjörnu-Sævar um sólmyrkva. Þeir fara um víðan völl og ræða meðal annars frægðina, geimverur, teiknimyndir og auðvitað sólmyrkva. Sævar segir frá því hvernig best sé að undirbúa sig fyrir sólmyrkva og fylgjast með honum á öruggan hátt. Í þættinum segir…

Karfan þín

Valmynd